Wasted Company

Mr. DoucheBag

22.08.2007 21:11:34 / haddis

Isst das einen nippel, ja?

Var að horfa á Vináttulandsleik Englendinga og Þjóðverja, og múnderingin á þjálfara Þýskalands var svo getnaðarleg að mér hreinlega stóð...

Væri flott (og ýkt kremað!) ef þjálfarar hérna heima myndu fara sveipa um sig sjali, skarta Hugh Grant greiðslu og klæðast gegnsæum geypride skyrtum, slíkt athæfi myndi að öllum líkindum hvetja leikmennina til dáða og keyra þá áfram í þeirri von um að gera fagran þjálfarann stoltan...

Efast samt um að Roy Keane myndi láta plata sig í slíkt...

Er einnig afar illa við Ungverjaland þessa stundina þar sem sigur þeirra á Ítölum hafði af mér 25000 krónur... Dómaraskandall vill fólk meina en ég segi niður með Ungverja víðs vegar um heiminn.... Fylgið mér gegn þessum sora jarðar!!

Jafnvel meira síðar...

Tsjjjjiggggtsving


» 17 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 12:48:39 / haddis

Nuggah Plíízzzz....

Í morgun held ég að tásurnar mínar hafi gefist upp á þessari ólykt sem myndast þegar hitinn leikur um sveittar tærnar og myndar þessa hrikalega karlmannlegu pest, og ég fann ekki betur en karamellulykt hafi komið í staðinn... 

Bað ég föður minn að staðfesta grun minn í hádeginu og rak toffífótinn framan í kallinn... Nefið datt af honum og óvíst er hvenær hann vaknar úr dáinu.... 

En að öðru mun líklegra og dásamlegra... Hróarskelda var í alla staði unaðsleg, nema kannski seinniparturinn á fimmtudeginum, sem var vægast sagt votur, en annars var þetta snilldarferð.... Beastie Boys voru alveg fokkings geðtruflaðir, sem og fleiri atriði en þeir fannst mér standa verulega uppúr... kem með svona bestof lista einhverntíma ef ég nenni... 

Svo var það giftingin um helgina, þetta var bara þrusustuð, veislan, athöfnin og allt í kring alveg splendid... Skyldmenni Hrefnu frá Skagaströnd fá spes præs fyrir sérdeilis hnyttið atriði í veislunni... 

Og að enn öðru, en grundarfjarðardagarnir munu renna upp um komandi helgi, sem er ekkert nema spennandi og dásamlegt, býður það uppá semíútilegu, gríðarlegt bjórþamb og grill og tan og lautartúra og skrúðgöngur og ég veit ekki hvað og hvað...Ég mun altjent vera í gula hverfinu, mæli meððí.... 

Og þá að því allra mikilvægasta, en bráðlega mun enska deildin loxxxxins byrja aftur og fyrir þá sem hafa brennandi áhuga þá mun þursadeildin í fantasíuleiknum vera opnuð aftur og nú verða vonandi að minnsta kosti yfir 30 djúds sem munu spila, 1000-2000 kjell á kjaft, áhugasamir bara hafa samband við mins.... jííííhaaaaaa...... 

Og svona í restina, mæli eindregið með Deathproof, geðveik mynd og geðveikara sándtrakk, alveg kikkess.... 

TjiggTjing....


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 17:18:50 / haddis

Enough of this Kung Fu shit....

Ef þessir tarfar taka ekki þennan gullmola á skeldunni verð ég pist, tékkit át : http://www.youtube.com/watch?v=h0XAZGEhsF8  

Gæjalegt stöff þarna á ferð, fæ væntanlega kitl í púnginn þegar þeir stíga á stokk á föstudaginn... 

Talandi um púng, þá fór ég á Die Hard 4.0 í gær, og það þarf ekkert að spekulera hvort hann John sé með myndarlegt par milli lappanna, klassaræma þarna á ferð sem gefur hinum þrem ekkert eftir.... 

Að lokum skulum vér baula á Eagles of Death Metal, sem gerðu sér lítið fyrir og afboðuðu komu sína á Hróarskeldu án þess að koma með svo mikið sem ástæðu fyrir því... Punks.... 

En þetta verður að öllum líkindum brakandi snilld... 

Þið hin sem farið ekki, skemmtið ykkur vel á Bubba og Ragga Bjarna á írskum dögum, orðrómur er í gangi að grúppíurnar sem Raggi hefur sankað að sér yfir aldirnar muni fjölmenna á dansleikinn, flestar fæddar fyrir seinna stríð, en hver spyr um aldur þegar “flottur jakki” drynur yfir mannhafið....tvítví tví tví..... 

Túrúlú....


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 21:11:52 / haddis

Hwei þú, vaaaftthurrr, veiiiinusvinniii veehehehennnn...

Er gríðarlega sáttur með eftirfarandi:

* Liverpool er í úrslitum meistaradeildar og komst enn eitt árið lengra í evrópu heldur en hin ensku toppliðin, eru bara langbestir í evrópunni...

* Búinn í prófum, og á bara eitt stykki 30 bls ritgerð eftir sem verður vonandi sönsuð í sumar..

* Það er orðið basket- og fótboltavænt veður úti...

* Yndislegt að þessar kosningar séu loksins búnar...

* Hversu aktífur bloggari ég er...

* Lesbíur

Er á hinn bóginn feykilega óhress með eftirfarandi:

* Heiðar vann í Fantasíuleiknum og fyrir utan það að missa af pottinum þarf ég að hlusta á grobbið í honum í minnst ár, eða þar til ég hirði titilinn af honum...

* Enginn enski bolti um helgar er afar súrt ástand, veit ekkert hvað ég að gera af mér....

* Gekk illa í einu prófi, langaði mikið til þess að missa mig í miðju prófinu og öskra, grenja og stappa niður fótunum...

* Fuglar mættu halda kjafti fyrir utan gluggann minn á nóttunni...

* Viðhald á rauðu þrumunni... hans tími fer að koma...blessaður...

* Að skímó sé ekki að koma með kommbakk...

* Niðursoðnir sveppir

Annars er það á hreinu að það verður alltaf nóg til af pappadiskum og öli á boðagrandanum í sumar, þar sem að Mr. Grill transformeraði sér um helgina og breyttist í lín, mín, grilling masjín...

Verður barbíq veislur hægrivenstre jájá...

Veriði bless..


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 11:45:11 / haddis

Hjelling í djeiglunni...

Djöfull er langt síðan eitthvað af ráði var ritað hér á þessa fjallmyndarlegu síðu, var búnað gleyma lykilorðinu og annað eins...

 En af nógu er að taka, fyrst ber að nefna að ég er að fara í jómfrúarferð mína á hróarskelduna, og mikið andskoti hlakkar mig til...

Drottningar Steinaldarinnar, Ernir Dauðarokksins, Morðingjarnir, Skrímslastrákar og Þeir Hverjir svo einhverjir séu nefndir, þetta verður alveg elegant... svo verð ég þarna hoppandi um í sokkabuxunum mínum að tísta og flissa og láta danska herramenn bjóða mér í villtan dans....djeddjað....

Á undan því eru hinsvegar próf sem maður þarf víst að þreyta, á tvö eftir og svo verður ekki meira af prófum í altjent 2 ár, er kominn með nóg af þessari vitleysu...

Skilst svo á fyrirbærinu og krúttinu honum almari að það sé árgangsmót hjá hinum geysilega fallega 81 árgang á næstu grösum, það ætti að vera forvitnilegur dagur...

Að endingu verð ég stikla á því sem er að gerjast í sambandi mínu við hana Rutlu, en hún fór fram á það að við myndum taka samband okkar á næsta stig, hækka okkur upp um einn...

Eftir þónokkrar vangaveltur um hvort þetta væri skref í rétta átt og hvursu praktískt þetta væri, komst ég að þeirri niðurstöðu að þetta gæti bara verið góð hugmynd og ákvað að slá til...

Það skal þó tekið fram að ég lá í nokkurn tíma undir feld, enda ekki þekktur fyrir að taka hvatvísar ákvarðanir og hoppa bara í einhvern pakka, en svei mér þá, mér fannst bara vera kominn tími á þetta...

Þannig að það skal hér opinberast, Hafsteinn og Rut eru að fara að kaupa sér grill!!!

 Hafið það æði...títí


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 16:11:47 / haddis

Kamar?

Í kjölfar atburðarins sem rétt í þessu átti sér stað varð ég að skrásetja nýja færslu, bara varð...

 Ég var í rólegheitum mínum staddur á Bókhlöðunni, þessu menningarmusteri þar sem ungir sem aldnir mæta til þess að læra yfir sig, mennta frá sér allt vit, og enn aðrir mæta til þess að leggja sig...

Svo ætlaði ég svona í rólegheitum mínum að skreppa aðeins á salernið, svona bara til þess að létta aðeins á honum Nonna Káta mínum, en nei, mér var sko ekki kápan úr því klæðinu..

Þegar ég geng inn á eitt klósettið þá lemur einhver kyndug lykt mig í vitin, og þá blasir við mér ástæðan, sem var síður en svo yndisleg...

Það hafði bara einhver vitleysingur tekið sig til og drullað á gólfið!

Er ekkert að tala um smá hlessing á einum stað, það hafði bara einhver ræpt á gólfið og steppdansað í gúmmilaðinu eftir sig....

Þetta var hrikalegt...

Vona að saurlífisseggurinn náist og verði látinn sleikja þetta upp...

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 14:29:50 / haddis

Og Þó....

Margt búið að gerast undanfarið, til dæmis þreif ég bílinn minn að innan um daginn, kom í ljós að ég hafði ekki gert það almennilega síðan um aldamótin, sem mér finnst vera töluverður tími... 

Fór svo í fyrsta sinn á dömukörfuboltaleik um daginn, og var það alveg ágætt bara, stigaskorið kannski ekkert eins og í NBA, minnir að þetta hafi verið fimmtíuogeitthvað gegn þrjátíueitthvað, en sá fullt af feisum og öðru skemmtilegu, langaði aftur að æfa besket eftir áhorfið... 

Lét fáa hlaupa apríl í gær, frétti samt að Þorvaldur Sveinsson hafi verið á vappinu í kringum Egilshöll þar sem Thierry Henry og van Persie áttu að vera til þess að taka upp auglýsingu fyrir Nike... 

Heyrði mjög svo fyndið í le radio í morgun, þá var verið að lesa upp einhverjar auglýsingar, man ekki hvaðan, líklegast af einkamál.is og þar var ein auglýsingin svohljóðandi: 3 hressir strákar vilja kynnast stelpu sem er til í að taka þátt í hópnauðgunarfantasíum þeirra.... Sjáið þið ekki fyrir ykkur þar sem þessir gaurar sitja saman yfir Lindsey Lohan vidjói og svo byrjar einn af þeim: hei strákar, hérna hvað finnst ykkur um hópnauðgun? Gaurnr2: sjitt maður djöfull væri ég klár í eina svoleiðis! Gaur3: JÁ, Ég líka marr!!! Fyrstigaurinn: Jeesssss, mig hefur dreymt um slíka athöfn í langan tíma, ánægður með ykkur strákar, djöfull er ég glaður.... Held, já ég held að þeir eigi við einhver issjús að stríða... 

Af áhugaverðum kvikmyndum sem vert er að eyða tíma sínum yfir, og felur í sér eitthvað minna af hópnauðgunum má nefna eftirfarandi : 

300: Flott mynd, spartverjarnir eru að drepast úr magavöðvum, fékk næstum stand... 

Reeker: Alveg ágætis hryllingsmynd, ekki meira en ágætis þó....og þó... 

Shutter: Tælensk draugamynd, ég dó næstum úr hræðslu, miklu betri en Ring og Grudge og allt hitt Hollívúdd endurgerðardraslið, this is sja sjittttt..... 

Switchblade Romance: Bara alveg þrusugóð splattermynd, reyndar á fjukking frönsku, en stendur þó fyrir sínu, hellingur af gorí atriðum, blóði og sniðugu plotti... 

Á döfinni er svo páskarnir, með öllum sínum fríum og notalegheitum, mun fara á vagg&veltu tónleika á miðvikudaginn, og svo verður restinni eytt á milli partía og tómra bjórdósa, eins og venjan segir til um... 

Þessi færsla er orðin býsna löng, ný færsla er því væntanleg í enda maí eða byrjun júní.... 

TaTahhhh...


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 12:42:25 / haddis

Morgunverður Meistaranna...

Kornfleks og kaffi... Dýrslegt...

Svo er allt girt í brók, vaknað fremur snemma, étið og brunað í ræktina, á fökkings laugardagsmorgni! Geri aðrir (í mínum félagsskap) betur...

Er ekki viss um að ég þori að greina frá því hversu mikill karlmaður og jaxl ég er, þar sem ég og tveir aðrir ónafngreindir harðjaxlar erum að fara að glápá boltann í allan dag og spila manager um leið... Er handviss um að Dirty Harry og John McClane hafi eytt laugardögunum sínum nákvæmlega eins... Töffarar erum við segi ég, ekki nerðir...

Vill svo óska þeim Hjalta Frænku minni og Heiðari Mar til hamingju með daga sína, Hjalti verður tvítugur á næstu dögum en hann Heiðar er orðinn jafnkynþokkafullur og ég og Sean Connory, enda búin að ná virkilega virðulegum aldri...

Gaman að nefna það að endingu að partur af þessari færslu var rituð á klósettinu þar sem ég var að tefla við páfann og vantaði lesefni, sló tvær flugur með einni hendi...Geðveikt....

Veriði Bless


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 17:24:10 / haddis

Réttu mér homblestið, Jónas...

Þessi grein hérna er eins og sungin útúr mínum eigin anus:

http://www.randomsalad.com/go/how-to-wipe-your-ass/

 

Ég persónulega reyni að krydda þetta aðeins með vissu millibili, svo maður fái ekki leið á þessari nauðsynlegu rútínu, fer í vinstrihandarmanúvor, lyfti öðrum fæti fyrir ofan herðar og svo framvegis...

 

Gaman að segja frá því að ég varð milljónamæringur um daginn, vann víst í einhverju ímeillotterí sem ég skráði mig aldrei í... Varð afskaplega glaður um stunda, þar til ég áttaði mig á að þessir njólar voru að spila með mig.... Næst þegar ég fer til Spánar mun ég hunt those suckas down, djöfuls fífl....

 

Mætti svo á sjúkrahús um daginn, ætlaði bara að fjarlægja fæðingarbletti og svoleiðis dúllerí, sem læknirinn mátti bara ekkert vera að, og var svo seinna um daginn boðaður í einhverja ristilspeglun eða eitthvað... Tók slíkt ekki í mál, og spurning hvort læknarnir mættu ekki aðeins fara að fínpússa skýrslunar sínar...fusss....

 

Gerðist svo sekur um gríðarlegt hallæri þegar ég fattaði að ég lét alveg eins og Office Space nördið sem var að rappa með á fullu í bílnum sínum, þar sem ég kyrjaði Deep Cover hástöfum ásamt Dr. Dre og Snoop á leiðinni í skólann og sveiflaði höndum með... Held blessunarlega að enginn hafi orðið þess var... Jíííeeeiijaaahh end jú dóónt stopppp, kos ðers von eigt seven on a önderkovah kopp...

 

 

Glæsilegur...

 

Til að fullkomna gæjaskapinn skulum oss horfa hér á öfgamennin í Masters of Reality og Steven Seagal í sömu sæng, gerist vart betra...

 

http://www.youtube.com/watch?v=VL5IcnD9gqo

 Túddúlúúúúú


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 17:30:22 / haddis

Into the Hollow...

Jójó

 Er gríðarlega sáttur með það að Queens of the Stone Age ætla að senda frá sér nýja plötu í sumar, sem nefnist Era Vulgaris, og koma gæjar eins og Trent Resnor, Mark Lanegan, Billy Gibbons og þarna gítarleikarinn í Strokes sem er eitthvað að trúbadorast núna, meðal annars fram á plötunni....

Ekki slæmur félagsskapur það... en ég rakst á myndband á jútúp þar sem Chris Goss og Josh Homme eru að spila eitt lagið sem á að vera á plötunni, og er það töluvert töff og gefur fögur fyrirheit um framhaldið....

Það er eitthvað fokk á þessu drasli þannig að ég skil eftir linkinn hérna fyrir neðan...

 http://www.youtube.com/watch?v=mBGEZZSOkl0

Að lokum óska ég Manchester United mönnum alls hins versta í framtíðinni, megi konur þeirra fá misheppnaðar brjóstastækkanir og þeir mættu flestir fá sýfillis og heróínávana...

Tata...


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 18:10:21 / haddis

Good times...

Gröfukallar eru frekar sérstakir, alls ekki allir þó, því margir hverjir eru algerar dúllur, eins og hann Heiðar Mar, sem er silfur af manni og tekur bestu ákvarðanirnar í bransanum í dag, mun hann verða ráðgjafi minn þegar ég verð forseti í framtíðinni... 

Var að vinna með einum ákaflega hressum gröfukalli í dag, og í hvert sinn sem hann stökk útúr gröfunni var hann með ferskt spaug sem hann hafði líklega heyrt partíljónin á bylgjunni blasta í eyru landsmanna... 

“Strvákvar, hafið tsið eitthvedndíma farvið uppá gellu sem var með skemmtiLEG?” 

“Ekki? Nvú, en einhverja sem var með eitthvað hrikaLEG??” “HaHaHa, hún hvefur lvíklega bara verið með eitthvað leiðiLEG!!!” 

Það var orðið vont, andlega og líkamlega, að hlusta á grínið... 

Var svo að sjá myndband með Idolhetjunni honum Kalla Bjarna á ríkis, og hvað var kellinn að spá??!! Þetta var myndbandið við hið frábæra lag “Gleðitímar” og þetta var með því verra sem ég hef séð... Hallærið var gríðarlegt.... 

Annars er upplestrarvika í skúl með tilheyrandi fríum og dúlleríi, sem er ákaflega jákvætt og í þokkabót er plokkfiskur í matinn, hvernig endar þetta... 

Ég hata Rachel Ray, innilega hata hana næstum jafn mikið og ég dýrka plokkfisk... 

TahTah


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 12:37:49 / haddis

Hell Jess....

Verð að taka ofan fyrir Craig Bellamy, þessi gaur er algjör töffari...

Hann varð víst aðeins of drukkinn á æfingaferðalagi liðsins fyrir einn mikilvægasta leik þeirra á tímabilinu og lét liðsfélaga sinn fá það óþvegið þar sem hann vildi ekki taka lagið með sér, og sló hann aðeins með golfkylfu...

Svo skorar gæjinn bara og fagnar með sveiflu sem Tiger gæti verið hreykinn af!

Spurning um steisjon helgi eftir svona úrslit, á meðan arsenal stuðningsmenn sitja heima og naga handarbökin... alltaf gaman af því....

Svo er bara svo ljúft veður...

Túddúlú


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 00:21:55 / haddis

E.T.....

Ef maður óvart villist inná sjónvarpsstöðina sirkus síðla kvölds þar sem enterteinment túnæt þátturinn ræðut ríkjum eru góðar líkur á að maður sjái eitthvað slúður um hana Önnu nikól smiðþ, en nú er þessi fégráðuga gála dáin og ég vill að þessari vitleysu fari að ljúka sem fyrst....

Um daginn var eitthvað viðtal við mann sem kynntist henni eitt sumarið af því að hann var á sömu strönd og hún í mánuð eða svo, og gaurinn felldi tár í viðtalinu... þessi kelling var ekki SVONA viðkunnaleg að maður alveg fari í mínus yfir að hún skuli hafa hrunið niður útaf pilláti...

Jákvæða við þetta er það að eftir nokkra mánuði þegar ET þættirnir verða búnir að ná sér eftir þetta áfall fara þeir að hætta að fjalla um síðasta parið af skónum sem hún verslaði sér fyrir grilljarðana sem eiginmaður hennar til margra ára ánafnaði henni...

Fór svo á Hannibal Rising í kvöld, var fyrir örlitlum vonbrigðum ef ég á að segja eins og er...

En ef ykkur vantar ljóma í lífið, þá skuluði tékka á Archie Bronson Outfit, sem er alveg geðveikt sjitt, eðal rokk&ról þar á ferð....

Gruna hljómsveitarmeðlimina um að stunda eitthvað harðara en pilluát í sínum frístundum...

TahTah


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 12:53:19 / haddis

Stöðugur Frómans...

Var alveg yfirburða spakur þessa helgi sem flestar, hékk með Hjallanum í vidjóglápi og kúrðum við saman uppí rúmi... óþarfi að greina frá fleiru, bara kannski það að hann var blíður, svooooooo blíður...

Á milli þess að vera blíðir horfðum við á ógrynnin öll af le múvís, þar á meðal Smoking Aces, sem mér þótti bara vera hin svakalegasta, Jeremy Piven lifnar við í þessari mynd, og á glæsilega spretti, sem og sjarmatröllið Ben Affleck....

Líklega frekar seinn með dóm um Jackass 2, var bara að sjá hana og djöfuls gargandi snilld! Munaði svoooo littlu að ég hefði misst saur á meðan á áhorfi og spúni stóð...

Sá Crank um daginn og verð ég að segja að Jason Statham setur nýja staðla varðandi gæjaskap, er alveg rótsvalur í þessari mynd.... Meina, hann er samt ekkert að slá Steven Seagal út, en hann fer létt með Sylvester...

Hvað er svo málið með það? Sly er að verða steingervingur og ákveður að skella sér aðeins í hringinn aftur og boxa við naut á besta aldri, djöfuls rugl.... Ég hef aldrei þolað þessar Rocky myndir, sömu bjánalegu slagsmálaatriðin þar sem Slyarinn étur og étur högg frá vonda kallinum og rotar hann svo.....Adriaaaaaaan....

Að endingu, þá horfði ég á X factor á föstudaginn, og þótti mér þátturinn hin mesta ræpa, og útaf hverju var þarna kjúforjú gellan látin í þetta, hún er alger kjáni...

Annað súrt sjónvarpsefni sem mig var farið að hlakka til að sjá var Jerico, horfði á þetta í gær og varð fyrir major vonbrigðum, alveg hræðilegir þættir, væmnir og dramatískir, Brúkkhæmer er pottþétt með rindilinn á sér á kafi í þessum þáttum.....

Fylgist hins vegar með Dexter, frábærir þættir um löggu sem er raðmorðingi...

Shit GodDamn, Gaaaaddeeeeem I´m a Maaaaan.....


» 15 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 21:52:36 / haddis

Vell hellú ðer...

Halló

Fyrsta færsla ársins... árið byrjaði þó bara ágætlega, þó svo það hafi byrjað betur hjá sumum....skruppum á dansleik við piltarnir, fór í keiluskónum og dansaði allt í rot á meðan dyraverðirnir hentu öllum út sem dirfðust svo mikið sem að líta til þeirra...

Skólinn byrjaður, og miðað við allt þetta námsefni þarf ég líklega að klóna mig og redda okkur báðum tveggja ára birgðum af amfetamíni, sé fram á minna af svefni þetta misserið, sem er sosum ágætt jájá....

Er að horfa á hlustandaverðlaunabullið es ví spík og ég veeeerð að segja að þetta er hrikalega dapurt....Regína átti svooooo að vera söngkonan, ekki Klara, meina vötts öpp viðt ðet???

Svo er nokkuð ljóst að við piltarnir þurfum að skella okkur í rellu og skreppa aðeins til Bretlandseyja, og ekki til þess að bregða okkur á fótboltaleik, og því síður til að elta uppi fögur fljóð, ónei... Ofurmennið Steven Seagal gerði sér lítið fyrir og ákvað að dúndra sér í tónleikaferð svona rétt á milli mynda, og það má bara ekki missa af slíkum atburði...

Seagal, frosinn á sviðinu að binda vondukallahnúta á mækstandinn og smjattandi melódíur inná milli getur ekki verið annað en pjúra sniiiiilld.....

TipTop, farinn í Bully...

Cheriooo


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7